Þessa dagana er ég stöðugt að fylgjast á eBay, aðallega til að kaupa tónleikamiða. Sumt uppselt og annað ekki.
Ég vildi kaupa miða á tónleika Duels þann 26. okt og reyndi að bjóða í 2 miða sem fóru á endanum á 0.99 pund! en seljandinn var með stillt á að fólk á Íslandi gæti ekki boðið (upp á að senda þetta). Ok við vorum í bandi og hann sagðist eiga aðra 2 miða til að selja ef hann fengi nógu gott boð. Hann bað mig að segja hvað ég myndi borga í mesta lagi. Ég skrifaði honum því "Ok Jason .. the gig hasn't sold out yet so I wasn't going to bid a lot on them. I don't know if I only need 1 ticket or if I could use a second one so I'd be happy to get 2 tickets for slightly more than I have to pay for 1 ticket at SeeTickets. At Seetickets I can get 1 ticket with postage for 10,60. So I'd pay maximum 12,50 for 2 tickets with postage included."
Til baka fékk ég þetta "go with seetickets, i am not running a goddamn charity here...please don't contact me again"
Nú er hann búinn að setja umrædda miða á sölu og starting bid er 0.99 pund eins og síðast og ætli þeir fari ekki bara á það. Ég vona að hann sé ánægður með þessa stórfúlgu.
Mig langar mest að svara og hrauna yfir hann en ef þetta er kannski einhver sækó þá langar mig ekkert að láta sitja fyrir mér þegar ég mæti á tónleikana.
29. ágúst 2006 klukkan 19:50
Björn Helgason 1 athugasemd
Núna á ég bara 1 kvöld eftir á Kofanum ... veij veij .. mun sakna þess en gott að taka pásu. Það er rosa gaman að dj-a en maður verðu dáldið þreyttur á að vera alltaf á sama staðnum og þá líka ef maður er ekki 100 % sáttur við kjörin að þá verður erfiðara að vera alltaf jafn ferskur. Mig langar samt að koma aftur, er í fínu sambandi vð eigendurna held ég þannig að það ætti tæplega að vera vandamál.
En já ég er á næsta föstudag ... og ég ætla að hafa stóran miða fyrir aftan mig sem segir "ENGIN ÓSKALÖG !!!" ... það er rosa truflandi að taka alltaf við óskalögum. Það eru oft lög sem maður hafði ekki hugsað sér að spila neitt ... eða ekki kannski á næstunni ... svo gleymi ég oft hvað ég ætlaði að gera næst. Ég vil meina að spilamennskan mín sé lang best þegar ég er ekki truflaður og það kemur betra flæði í þetta.
En ég ætla samt ekki að segja að ég hati að vera truflaður, það er bara stundum þegar staðurinn er stappaður að maður fái engan frið, þá verður maður pirraður. En maður hefur kynnst eitthvað af fólki þarna, almennt er mjög gott fólk sem sækir staðinn, fólk sem maður gæti hugsað sér að eiga sem vini. Svo finnst mér ekkert leiðinlegt þegar sætar stelpur koma að smjaðra fyrir manni :)
Æ þetta er orðið gott þarna ... í vikunni ætla ég að koma Kofanum á myspace ... allir þessir staðir komnir með myspace og Kofinn er næstur.
Sagði ekki í síðasta bloggi hvenær ég fer út. Það er jú 23. sept. Upphaflega ætlaði ég 24. sem er á sunnudegi en ég hafði ekki pantað flugfarið sem ég hefði fengið á 6 þús á sunnudegi ef ég hefði klárað að kaupa það á sínum tíma. Núna um dagin var sunnudagsflug komið í 16 þús en laugardagsflug gat ég fengið á 6 þús. Það er of mikill munur til að réttlæta sunnudagsbrottför.
Þannig að föstudaginn 22. sept (ekki júlí ) ætla ég að taka kveðjudjamm með vinunum enda mun ég ekki sjá fólkið í 3 mánuði. Svo bara mæti ég nokkrum tímum seinna grútþunnur og illa sofinn, eða jafnvel ekkert sofinn, upp í flugvél á leið til breska konungdæmisins. Ég býst fastlega við því að sofa á leiðinni !!!
En þetta er gott í bil ... over and out !!
28. ágúst 2006 klukkan 19:58
Björn Helgason 3 athugasemdir
Já ég er víst ekki duglegasti bloggari landsins en finn hjá mér þessa þörf að koma mér aftur í bloggæfingu. Eflaust vilja einhverjir vita hvað ég er að aðhafast úti í London
London ? ... Já London, það hefur líklegast ekki farið framhjá neinum sem ég þekki eða alla vega þeim sem vita af þessu bloggi að Bjössi litli er að fara út í hinn stóra heim og flytjast til London. Þar mun ég eyða u.þ.b. 3/4 hlutum næstu 3 ára og eflaust mun meir. Alla vega langar mig að búa þar áfram eftir nám.
Ég er sem sagt að fara í háskóla ... læra Music and Media Management í London Metropolitan University sem er einn fjölmennasti skóli landsins held ég barasta. Það eru eitthvað um 34 þús manns þar og háskólasvæðin eru 2. Ég verð á norður háskólasvæðinu (campus) í gini ljónsins ... jú hvað meina ég með því ? ... Það er nefnilega það að ég er harður Manchester United aðdáandi en skólinn minn er ca. 500 metrum frá nýja Arsenal vellinum Hverfið og/eða hverfin í kring heita eitthvað Arsenal og Highbury og svona. Skemmtilegt hahh Þannig að ég veit ekki hvort ég eigi að þora að vera United aðdáandi eða knattspyrnuáhorfandi yfirleitt meðan ég er þarna.
Eitthvað það sem ég hugsa mest um þessa daga varðandi London er hvaða tónleika ég eigi að fara á í haust. Þeir sem þekkja mig best vita nú kannski að tónlist er mitt helsta áhugamál (þess vegna þetta nám) og að fara á tónleika er bara eitthvað það skemmtilegasta sem ég geri.
Þannig að já ég er nú þegar kominn með miða á Muse og The Flaming Lips í nóvember (sitthvorir tónleikarnir). Er svo heitur fyrir að fara að sjá Peaches 13. okt. , The Knife 14. okt og svo eru Hot Chip tónleikar 11. okt en það er uppselt og ég veit ekki hvort ég tími að kaupa miðana á eBay né hvort ég hafi efni á því.
Svo er pæling hjá mér og pabba að hann komi og heimsæki mig í byrjun nóvember og við förum á tónleika með Sufjan Stevens 3. nóv og svo á The Feeling 2. eða 4. nóv. Frábær poppplata með þessari hljómsveit The Feeling, ég er samt pínu hræddur um að auðvelt sé að fá leið á henni því það vill oft verða með svona of grípandi popp (samanber James Blunt ).
Svo hefur maður pælt í að fara að sjá The Automatic, Jet, Razorlight, The Rapture (Dangermouse pródúserar nýju plötuna) , Wolfmother, Lily Allen. En það er alveg á hreinu að ég ætla að sjá Duels 26. september á 120 manna tónleikum og svo The Pipettes 29. sept. Hægt að nálgast tóndæmi hér http://www.myspace.com/thepipettes http://www.myspace.com/duelstheband
Ef einhver vill gefa mér svona 100 þús kall svo ég komist á allt sem mig langar að fara á þá skal ég glaður taka við því
Líka væri gaman að fá heimsókn um það leiti sem Hot Chip, Peaches og The Knife eru að spila
En já þetta er orðin óttaleg langloka og kannski ekkert skemmtilegt lesefni. Ég er bara svo hrottalega spenntur. Á samt eftir að sakna vinanna og fjölskyldunnar og svo Kofa Tómasar frænda. Algjörlega nýtt líf sem maður er að byrja.
Jú heyrðu ... langaði bara aftur að óska Hildi systur og Ásþóri með að hafa gift sig. Þau gerðu þetta bara án þess að segja nokkrum og maður var rosa hissa, sérstaklega því þau stungu af til Köben til þess.
En ég er rosalega ánægður því Ásþór er toppgaur og þetta er hið besta mál fyrir þau og Þórð Helga Hmm, það hefði samt verið stuð að steggja kallinn !
07. júní 2006 klukkan 06:26
Björn Helgason 4 athugasemdir
Í dag er 06.06.06 ... Bubbi á afmæli og ég er enn á lífi, þ.e. heimurinn endaði ekki kl 06:06:06 í nótt.
Veijj !
Ekki er ég að fara að sjá Bubba, þá væri ég líklegast mættur upp í Höll þó svo ég sé þekktur fyrir flest annað en að vera tímanlega á atburði (hmm skrifað löngu áður en ég vistaði bloggið og missir því marks)
Hins vegar fór ég að sjá Supergrass á laugardagskvöld. Klárlega meðal skemmtilegustu tónleika sem ég hef séð. Þetta er líka hljómsveit sem einkenndi mín unglingsár þó ég persónulega hafi ekki byrjað að hlusta almennilega á þá fyrr en 1999 eða 2000. Maður var þarna hoppandi og syngjandi á fullu og frábært að hafa vinina þarna með í þvögunni, Bigga, Árna, Steinar og fleiri. Shit þetta gleymist seint, auk þess sem ég reddaði mér útvarpsupptöku af þessu öllu . Það er á hreinu að þetta er ekki í síðasta sinn sem ég sé Supergrass live, langt í frá.
Ehhh þetta blogg er búið að vera hér í skrifum með hléum síðan kl 20 eða svo. Ætlaði að skrifa meir en best að slútta þessu í bili svo eitthvað komi út úr því.
hún er ansi spes ... ekki sérstök eða öðruvísi ... heldur spes :) alla vega þá er nýjasta bloggfærslan hennar lýsandi yfir það hvað þessi manneskja er já spes og líka bara stórklikkuð :) but that's how we like our Birna Rún don't we.
Jæja ... mín elskulega systir hún Hildur Sif var eitthvað að kvarta yfir bloggleysi. Annars held ég nú að ég sé bara að standa mig vel.
En já prófin. Þessi blessuðu próf þarf maður víst að klára til að halda áfram með lífið. Get ekki sagt að ég sé samt að leggja mig 100 % fram .. en ætli ég nái þessu ekki samt. Var í Fél 203 prófi í dag, hafði ágætis tilfinningu áður en ég mætti í það ... hafði náð að massa glósulestur vel 1-2 tímum fyrir það. En það verður að segjast að þetta var all strembið. Ég skrifaði samt bara eins og ég gat ... þó það væri ekkert samhengi þá er kennarinn væntanlega að leita eftir ákveðnum atriðum og eflaust slefa ég þarna. Hef samt nettar áhyggjur. Ég má taka endurtökupróf ef ég fell bara í einu og þetta er svona það eina sem ég hef áhyggjur af eins og er.
Annars er ég ekki búinn með mikið. Bara 2 próf af 6 (frestaði 3 ) ... Þýskan er á morgun kl 13 og ég er kominn á öfugan sólarhring ... auðveldara að læra þannig finnst mér. Svo er enska á fimmtudag .. síðan lærir maður eitthvað fram á föstudag og dettur aðeins á djammið.
Chill eftir próf þar sem ég byrja víst ekki að vinna fyrr en 26. maí ... verð fyrst um sinn með vinnutímann 10-20 sem er nice .. næ þá að sofa út :)
Annars bara kveð ég með þessari stórfrétt af idolinu mínu honum Kevin Federline ... það er ca. mánuður síðan fregnir voru af því að hún Britney Spears eiginkona hans væri farin að skammta honum fé ... gefa honum vasapeninga ... eitthvað virðist sá peningur ekki duga honum greyið http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1200432
Daddara ... vá skrýtið að halda úti bloggi. Mér finnst það vera svo stutt síðan ég bloggaði en samt eru komnir hva 6 dagar eða eitthva.
Glöggir lesendur tóku samt kannski eftir að ég ætlaði að blogga um daginn en sofnaði áður en það fór almennilega af stað og því var bara fyrirsögn ... nettur !!
But anywho ... mikið búið að vera að gerast síðustu daga. Á þriðjudag átti ég að spila á einhverju svona "Iggy & the Stooges" kvöldi á Sirkus og mætti ég kl 19 til að fara yfir tæknimál. Þá fékk ég sjokk því Sirkus á engar almennilegar CD græjur sem ég gat notað. Bara 2 plötuspilarar og mixer. Þannig að þar sem ég hafði ekki verið neitt spenntur fyrir að gera þetta og var kominn í kvíðakast þá reyndi ég að koma mér út úr þessu en það gekk ekki. Eitthvað sagt um að það væri búið að auglýsa mig sem DJ kvöldsins út um allt og hinn og þessi celeb ætlaði að mæta. Bara aðeins til að auka á kvíðann takk fyrir
En þetta reddaðist ... Jóhanna á Kofanum var svo elskuleg að lána mér græjuna sem ég nota þar og á hún þakkir skilið. SHIT HVAÐ MÉR LÉTTI ... Annars bara gekk þetta vel og það þó helmingurinn af efninu sem ég spilaði hafði ég varið að skrifa á diska nokkrum klst áður og hafði ekki hlustað á margt af því. The Jam (sem koma sterkir inn) Minutemen (bassaleikari The Stooges þar), Mc5 og fleira svona punk og post-punk til að gera þetta kvöld eins og var ætlað.
Svo rann upp tónleikadagur og ég mætti kannski seint ... lét hringja í mig þegar ég átti að mæta. Mætti kl 12. Gerði ýmislegt svo sem. En hafði nú búist við fyrr í vetur að ég myndi fá veigameira hlutverk .. en það var svo sem bara ágætt að það var ekki því ég hefði ekkert vitað hvað ég væri að gera !!! Þannig að ég var bara í þessum reddingum eins og á Maiden tónleikunum ... setjandi upp varningssölu ... raðandi stólum ... reddandi segldúkum sem við kóveruðum þakið með. Ég var sáttur við það, "þakið" á Hafnarhúss portinu þar sem tónleikarnir voru er nefnilega hvítur segldúkur strengdur yfir og hann hleypir inn svo mikilli birtu sem var ekki sniðugt ... þannig að við skelltum bláum seglum yfir sem skapaði svo skemmtilegan bláma í salnum :D.
Ég spjallaði nú ekkert við hljómsveitina þó ég hefði getað það þegar við vorum á Gauknum í mat. Maður verður eitthvað voða feiminn. Sé eftir að hafa ekki reddað mér myndum af mér með Mike Watt bassaleikara og kannski Ron Asheton gítarleikara. Það eru svalir gaurar ... sérstaklega Mike Watt !! sem sést hér http://www.myspace.com/wattfrompedro
Tónleikarnir sjálfir voru geðveikir ! Þeir sem voru tvístígandi með að fara mega sko alveg naga handabökin af sér af !! En ég skil það fólk svo sem vel því ef ég hefði ekki verið svona tengdur þessu og að vinna þarna þá hefði ég líklega ekki farið. Enda .... hver hlustar eiginlega á Iggy Pop eða The Stooges ??? Ég spyr. Eina sem mér fannst vanta var lagið "Search & Destroy" og svo hefði hljómurinn mátt vera betri en það er húsinu að kenna.
Eftir þetta var eftirpartí á Gauknum. Einhverra hluta vegna bara varð ég að fara í svona celeb partí þó ég þekkti engan. En sat þó lengstum og spjallaði við Ólaf Helga sýslumann og konuna hans ... indælisfólk .. og það var dansað og læti ... get þó sagst hafa farið í partí með Björk og að Daníel Ágúst hafi verið DJ ... SHIT HVAÐ ÉG ER MIKILL PLEBBI !!
Annars eru próf byrjuð og ég tek sömu byrjun og um jólin. Þá frestaði ég tveimur fyrstu prófunum en svo gekk náttla allt vel. Núna átti ég að fara í þýsku áðan en hafði ekki alveg nennt að koma mér í lestrargírinn og þó svo að þýska sé auðveld þá treysti ég mér ekki alveg. En hversu erfitt ætti að vera að ná 4,5 eða hærra á þýskuprófi ?? !! Helber aumingjaskapur .. en ég verð þá væntanlega kominn í lærdómsstuðið þegar sjúkraprófið verður á miðvikudag.
Svo er Íslenska á mánudag og fjölmiðlafræði sem ég er að íhuga að taka veikindapróf í viku seinna .. við sjáum til .. ég á líka að fara í félagsfræði próf á þriðjudag og sálfræðipróf sem ég fresta pottþétt.
Já gott fólk ... niðurstaða þessa bloggs er að ég Björn Helgason er haldinn þeim stórhættulega sjúkdóm .... Frestunarsýki !! Endilega kommentið ef þið deilið slíkum þjáningum með mér (Hildur ég veit að þú ert ekki þar á meðal sem er frábært )
En já þetta er orðið fáránlega langt
Lag dagsins er "Iggy & the Stooges - Search & Destroy" því það er frábært lag sem hefði átt að hljóma miðvikudaginn var .. SKANDALL !
Blee
05. maí 2006 klukkan 21:58
Björn Helgason 5 athugasemdir
Þarna segir að það séu til myndir af honum að sprauta heróíni í stelpu sem var einhver svaka aðdáandi .. í partíi .. og að stelpan hafi verið út úr heiminum og hafi varla vitað af því að hann væri að gera þetta.
Efnilegur drengur hér á ferð !!!
01. maí 2006 klukkan 01:30
Björn Helgason 4 athugasemdir
Jebbs ... fólk kann ekki gott að meta og var ekki að kaupa miða !!!
Nei segi svona .. ég skil fólk vel svo sem. Sjálfur var ég ekki hrifinn af því að fá þá hingað þegar ég var spurður áður en skrifað var undir samning. En það er bara því ég vissi að tímasetningin væri slæm vegna prófa og svo að þó svo Iggy Pop sé lifandi goðsögn þá þekki ég engan sem hlustar á Iggy Pop eða gamla stöffið með The Stooges. Og þegar kemur að því að eyða 5 þús kalli í tónleikamiða þá skiptir slíkt svo miklu máli.
En engu að síður þá verða þetta þrusu tónleikar og ég hlakka mikið til. Það að tónleikarnir verði á minni stað þýðir það að stemmningin verður bara ennþá betri (Megadeth í fyrra .. anyone?) ... mun frekar en að hafa þetta í tómlegri laugardalshöll þar sem hver og einn er með 5 fermetra pláss
Svo er Iggy & the Stooges kvöld á Sirkus, Klapparstíg núna á þriðjudag. Þá verður hljómsveitin komin til landsins og allar líkur á að þeir mæti á svæðið. OG ÉG ER AÐ DJ-AST !!! Shit !! Hehe þetta er geðveikt stressandi því ég get ekki beint spilað allt sama stöffið og ég spila venjulega á Kofanum
En anyways ... Kofinn í kvöld !!! Megastuð of course my horse ...
Og prófin á næsta leiti :) Mikið verður gaman að klára þetta stúdentskjaftæði once and for all ... og fara að gera eitthvað merkilegra :D
01. maí 2006 klukkan 00:42
Björn Helgason 1 athugasemd